HomeFréttirHeld þetta sé allt á uppleið hjá okkur

Held þetta sé allt á uppleið hjá okkur

A-landslið kvenna í körfuknattleik heldur utan til Lissabon í vikunni þar sem liðið leikur tvo æfingaleiki gegn Portúgal sem lið í undirbúningi fyrir for-undankeppni EuroBasket 2029 í nóvember. Ásta Júlía Grímsdóttir fagnar því mjög að fá þessa æfingaleiki og segir gríðarlega mikilvægt fyrir liðið að koma saman og fá alvöru leiki á þessum tímapunkti til að slípa hópinn saman.

Ásta bendir á að Portúgal sé sérlega hentugur og öflugur mótherji, en liðin mættust einmitt í síðustu undankeppni þar sem Ísland vann annan leikinn en tapaði hinum. Hún tekur heilshugar undir með landsliðsþjálfaranum Pekka Salminen um mikilvægi þess að spila fleiri leiki saman og segir spennandi verkefni bíða liðsins, eins og sjá má í viðtalinu við hana í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -