HomeFréttirLátum þessar þjóðir hafa fyrir því

Látum þessar þjóðir hafa fyrir því

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik er komið saman til æfinga fyrir krefjandi verkefni í undankeppni HM, þar sem fram undan eru leikir gegn stórþjóðunum Serbíu og Tyrklandi ásamt æfingaleik í Finnlandi. Tryggvi Snær Hlinason, miðherji liðsins, segir það gríðarlega mikilvægt og gott fyrir hópinn að koma saman á þessum tímapunkti, slípa liðið og byggja upp rétta stemningu fyrir risavaxna leiki gegn bestu liðum heims.

Mest spenna ríkir eflaust fyrir einvígi Tryggva undir körfunni, en honum bíður það erfiða hlutverk að kljást við Nikola Jokic, sem hefur verið einn allra besti körfuboltamaður heims undanfarin ár. Tryggvi lítur á áskorunina sem frábært tækifæri og er tilbúinn í slaginn við serbneska stjörnuleikmanninn á hans eigin heimavelli, eins og heyra má í viðtalinu við hann í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -