HomeBónus deildinBónus deild karlaBakvörður í Breiðholtið

Bakvörður í Breiðholtið

ÍR hefur samið við bandaríska bakvörðinn Montez Mathis um að leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi leiktíð.

Mathis er 27 ára gamall og 193 sentímetrar á hæð. Hann kemur til ÍR frá BC Rustavi í georgísku úrvalsdeildinni, en þar skilaði hann 18 stigum, 6,5 fráköstum, 4,3 stoðsendingum og 2,3 stolnum boltum að meðaltali í leik. Þar áður var hann stigahæsti leikmaður sömu deildar með Griffin (24,6 stig) og var meðal annars valinn leikmaður ársins og besti varnarmaðurinn af Eurobasket.

Mathis á einnig að baki góðan háskólaferil í NCAA Division I með Rutgers og St. John’s, rauf 1.000 stiga múrinn á háskólaferlinum og lék í NBA Summer League með Orlando Magic. ÍR-ingar bjóða hann innilega velkominn í Breiðholtið og hlakka til að sjá hann í Skógarselinu í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -