Stjarnan hefur samið við bandaríska leikmanninn Zay Dyer um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili.
Dyer er 22 ára gömul og kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék með Troy University. Hún vakti mikla athygli þar fyrir frammistöðu sína og hlaut meðal annars viðurkenningu sem varnarmaður ársins. Hún spilar í stöðu framherja, er öflugur frákastari og ver hringinn vel.




