HomeBónus deildinBónus deild karlaSemja við Bandaríkjamann

Semja við Bandaríkjamann

Stjarnan hefur samið við bandaríska bakvörðinn Austin Price um að leika með liðinu í Bónusdeild karla á komandi tímabili.

Price er 31 árs gamall og kemur með mikla reynslu inn í Garðabæjarliðið úr evrópskum deildum sem og FIBA Europe Cup, en hann lék síðast í Búlgaríu. Hann er öflug skytta og varnarmaður sem Stjörnumenn hlakka til að sjá á parketinu í ÞG Verk-höllinni í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -