HomeNeðri deildir1. deild kvennaKsenija Kuzmanović semur við Þór

Ksenija Kuzmanović semur við Þór

Þór Akureyri hefur samið við Kseniju Kuzmanović um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili.

Kuzmanović er 22 ára gömul og 182 cm framherji frá Svartfjallalandi. Hún lék áður með Leotar í Bosníu, þar sem hún skilaði tæplega 18 stigum að meðaltali í leik á leiktíðinni 2024–2025, og gekk síðan til liðs við Zadar í efstu deild Króatíu.

Hún er samkvæmt tilkynningu fjölhæfur leikmaður sem getur leyst bæði bakvarðar- og vængstöður, og fagna Þórsarar því að fá hana norður í Höllina fyrir komandi átök í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -