Enski bakvörðurinn Dwayne Lautier-Ogunleye, leikmaður Vals í Bónusdeild karla, vann gullverðlaun með enska landsliðinu í 3×3 körfuknattleik á Samveldisleikunum (Commonwealth Games) í Glasgow.
Lautier-Ogunleye og félagar í enska liðinu vörðu titil sinn og urðu meistarar eftir 19–17 sigur gegn Ástralíu í úrslitaleik. Bakvörðurinn, sem lék áður með Njarðvík en samdi við Val fyrir komandi leiktíð, á að baki langan atvinnumannaferil í Evrópu auk þess að hafa leikið í bandaríska háskólaboltanum með Bradley University og með A-landsliði Bretlands.




