HomeFréttirSöguleg stund: U16 drengja tryggðu sæti sitt í A-deild og leika til...

Söguleg stund: U16 drengja tryggðu sæti sitt í A-deild og leika til úrslita á EM

Íslenska U16 ára landslið drengja tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik B-deildar Evrópumótsins í Gevgelija í Makedóníu með stórkostlegum 95-51 sigri gegn Bosníu og Hersegóvínu í undanúrslitum.

Með sigrinum er sæti í A-deild Evrópumótsins að ári í höfn, en þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem U16 ára landslið drengja leikur í efstu deild og jafnframt í fyrsta skipti sem Ísland á þrjá fulltrúa í A-deild á Evrópumóti yngri landsliða næsta sumar.

Íslensku strákarnir léku á als oddi frá fyrstu mínútu og leiddu leikinn nánast allan tímann án þess að hleypa andstæðingunum yfir. Yfirburðirnir jukust jafnt og þétt eftir því sem leið á leikinn og varð mestur munur 46 stig í fjórða leikhluta.

Kormákur Nói Jack leiddi stigaskor íslenska liðsins með 20 stig og tók að auki 10 fráköst. Atli Freyr Haraldsson Katrínarson skoraði 16 stig, tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Baltasar Torfi Hlynsson skilaði 14 stigum og Davíð Breki Antonsson bætti við 11 stigum ásamt 9 fráköstum og 7 stoðsendingum. Jón Breki Sigurðarson var sömuleiðis sterkur undir körfunni með 9 stig, 12 fráköst og 3 varin skot.

Íslenska liðið hafði mikla yfirburði á öllum sviðum leiksins, tók 61 frákast gegn 40 fráköstum Bosníu og gaf 25 stoðsendingar. Liðið hittir annað hvort Eistlandi eða Króatíu í úrslitaleik mótsins á morgun þar sem barist verður um gullverðlaunin, en stærsta takmarkinu er þegar náð með sætinu í A-deild.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -