HomeFréttirÆfingaleikir ytra fram undan hjá A-landsliðum karla og kvenna

Æfingaleikir ytra fram undan hjá A-landsliðum karla og kvenna

A-landslið karla og kvenna í körfuknattleik leika æfingaleiki erlendis síðar í mánuðinum sem lið í undirbúningi fyrir komandi keppnisverkefni. Áður en haldið verður utan æfa bæði lið samtímis hér heima í næstu viku en þau ferðast svo bæði út fimmtudaginn 20. ágúst.

Kvennalandsliðið æfir í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði áður en það heldur til Lissabon þar sem stelpurnar leika tvo æfingaleiki gegn Portúgal föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst. Leikirnir eru mikilvægur liður í undirbúningi fyrir for-undankeppni EuroBasket 2029 en fyrsti keppnisgluggi Íslands er í nóvember.

Karlalandsliðið æfir í Ásgarði í Garðabæ í næstu viku og flýgur svo til Helsinki þar sem liðið mætir Finnlandi í æfingaleik föstudaginn 21. ágúst. Eftir dvöl í Finnlandi heldur liðið til Belgrad á mánudegi þar sem Ísland mætir Serbíu í mikilvægum leik í annarri umferð undankeppni HM 2027 föstudaginn 28. ágúst áður en haldið verður heim á ný.

Fréttir
- Auglýsing -