Frakkinn Aristote Bissokot hefur skrifað undir samning við Selfoss körfu og mun leika með meistaraflokki karla á komandi tímabili 2026-2027.
Bissokot er 23ja ára gamall, um 204 cm á hæð, og lék á síðasta tímabili í næstefstu deild í Austurríki þar sem hann skilaði 23 stigum og rúmum 7 fráköstum að meðaltali í leik.
Bjarmi Skarphéðinsson, þjálfari Selfoss, segir Bissokot henta leikstíl liðsins einstaklega vel en hann kemur með mikla hæð, íþróttagetu og fjölhæfni inn í hópinn.




