HomeFréttirAtli Freyr, Kormákur Nói og Jón Breki tilnefndir sem mikilvægustu leikmenn Evrópumótsins...

Atli Freyr, Kormákur Nói og Jón Breki tilnefndir sem mikilvægustu leikmenn Evrópumótsins – Hérna er hægt að kjósa

Þrír leikmenn úr íslenska U16 ára landsliðinu í körfuknattleik hafa verið tilnefndir í kosningu FIBA um besta og mikilvægasta leikmann B-deildar Evrópumótsins (MVP).

Það eru þeir Atli Freyr Haraldsson Katrínarson, Kormákur Nói Jack og Jón Breki Sigurðarson sem hljóta þennan mikla heiður eftir frábæra frammistöðu í riðlakeppninni.

Að fá þrjá fulltrúa í vali á leikmanni mótsins sýnir vel hversu öflugt íslenska liðið hefur verið á mótinu í Makedóníu en strákarnir unnu fjóra af fimm leikjum sínum í B-riðli og eru komnir í átta liða úrslit.

Kosningin er opin öllum stuðningsmönnum og er hægt að taka þátt og kjósa einn af íslensku strákunum í hlekknum hér fyrir neðan.

Hérna er hægt að kjósa

Fréttir
- Auglýsing -