HomeFréttirBerglind Katla valin besti leikmaður Evrópumótsins

Berglind Katla valin besti leikmaður Evrópumótsins

Berglind Katla Hlynsdóttir kórónaði glæsilegan árangur íslenska U16 ára landsliðsins þegar hún var kjörin mikilvægasti leikmaður Evrópumótsins í Ioannina í Grukklandi (MVP).

Frammistaða hennar í gegnum allt mótið var fráblr, en Berglind Katla var atkvæðamesti leikmaður mótsins með tölfræði sem var í sérflokki. Hún skoraði að meðaltali 32,2 stig í leik, tók 8,7 fráköst, skilaði 4,2 stoðsendingum og varðði 2,7 skot að meðaltali í viðureignum Íslands.

Gæðin voru sömuleiðis í fyrirrúmi í sjálfum úrslitaleiknum gegn gestgjöfum Grikklands. Þar lék Berglind Katla allar 40 mínútur leiksins, skoraði 34 stig, tók 9 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og varði 2 skot, sem skilaði henni heildarframlagi upp á 26 stig.

Þessi flotta viðurkenning undirstrikar frábæran árangur hennar og er verðskuldaður heiður fyrir þennan efnilega leikmann og íslenska hópnum til mikils sóma.

Fréttir
- Auglýsing -