David Okeke, sem lék síðast hér á landi með Álftanesi, er aftur án félags eftir að hafa látið af störfum hjá Club Deportes Las Ánimas í Síle. Brottför hans tengdist breytingum í þjálfaraliði félagsins og endurskipulagningu á leikmannahópnum en ekki frammistöðu hans á vellinum. Í þeim sjö leikjum sem hann spilaði í sílesku LNB-deildinni skilaði hann 16,6 stigum, 9,9 fráköstum og 1 varðskoti að meðaltali í leik.
Samkvæmt ábendingu sem Karfan hefur undir höndum er ný umboðsskrifstofa Okeke, Dream Catch Management, þegar í virkum samskiptum við nokkur íslensk félög varðandi mögulega endurkomu hans í deildina. Okeke gerði góða hluti með Álftanesi á síðasta tímabili þar sem hann skilaði 17,9 stigum og 8,9 fráköstum að meðaltali í leik.




