HomeFréttirÍsland mætir Grikklandi í baráttu um sæti í A-deild

Ísland mætir Grikklandi í baráttu um sæti í A-deild

Íslenska U16 ára landslið stúlkna leikur til úrslita á Evrópumótinu í Ioannina í Grikklandi í kvöld, þriðjudaginn 11. ágúst. Ísland mætir gestgjöfum Grikklands í úrslitaleiknum sem hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma.

Gríðarlega mikið er í húfi í leik kvöldsins en sigurvegari viðureignarinnar tryggir sér ekki aðeins efsta sætið á mótinu heldur einnig sæti í A-deild Evrópumótsins á næsta ári. Íslensku stúlkurnar mæta fullar af sjálfstrausti inn í úrslitaleikinn eftir glæsilegan sigur gegn Danmörku í undanúrslitum.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá úrslitaleiknum hér

Fréttir
- Auglýsing -