HomeFréttirBerglind stórkostleg er Ísland lagði Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins

Berglind stórkostleg er Ísland lagði Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins

Íslenska U16 ára landslið stúlkna vann glæsilegan 87-78 sigur gegn Danmörku í undanúrslitum í sínum hluta á Evrópumótinu í Ioannina í Grikklandi.

Íslensku stúlkurnar mættu af miklum krafti til leiks, unnu fyrsta leikhluta 24-18 og leiddu í hálfleik 46-42.

Eftir jafnan annan og þriðja leikhluta náðu íslensku stúlkurnar góðum tökum á leiknum í síðasta leikhlutanum þar sem þær náðu mest 19 stiga forskoti. Ísland stýrði ferðinni stærstan hluta leiksins, eða í tæpar 33 mínútur.

Íslenska liðið hitti frábærlega úr skotunum sínum, með 51% skotnýtingu, auk þess að bera hitann og þungann af frákastabaráttunni þar sem liðið tók 46 fráköst gegn 35 fráköstum Dana.

Berglind Katla Hlynsdóttir átti enn einn stórleikinn fyrir Ísland en hún var stigahæst með 31 stig, tók 9 fráköst, gaf 8 stoðsendingar, stal 4 boltum og varðði 4 skot. Rún Sveinbjarnardóttir skilaði sömuleiðis frábærri frammistöðu með 20 stig, 4 stolna bolta og 2 stoðsendingar. Eva Ingibjörg Óladóttir og Eva Ingadóttir áttu einnig sterkan leik, en hvor um sig skoraði 8 stig og tóku þær 6 og 12 fráköst.

Með þessum glæsilega sigri tryggði Ísland sér sæti í úrslitaleik síns hluta á mótinu þar sem liðið leikur um efsta sætið.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -