HomeFréttirSara hetjan er Ísland tryggði sér fimmta sæti Evrópumótsins

Sara hetjan er Ísland tryggði sér fimmta sæti Evrópumótsins

U18-landslið kvenna í körfuknattleik lauk þátttöku sinni á B-deild Evrópumótsins í Rúmeníu á mögnuðum nótum með naumum 78-77 sigri gegn Grikklandi.

Með sigrinum tryggði íslenska liðið sér glæsilegt fimmta sæti mótsins.

Íslenska liðið var með frábæra stjórn á leiknum stærstan hluta hans og náði mest tólf stiga forystu. Þegar leið á lokafjórðungunginn kom hins vegar mikið áhlaup frá gríska liðinu sem náði að snúa stöðunni sér í hag.

Íslensku stelpurnar sýndu mikinn karakter á lokasekúndunum þar sem Sara Björk Logadóttir varð hetja liðsins. Hún setti síðustu fimm stig Íslands í leiknum, fyrst stóran þrist til að minnka muninn og skoraði svo sigurkörfuna úr hraðupphlaupi á lokasekunðunum til að tryggja eins stigs sigur.

Rebekka Rut Steingrímsdóttir átti aftur frábæran leik og skoraði 24 stig, Hulda María Agnarsdóttir skoraði 19 stig og Sara Björk Logadóttir skilaði 14 stigum ásamt því að skora mikilvægustu stig leiksins.

Íslenska liðið kveður mótið því með glæsibrag og tekur fimmta sætið með sér heim.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -