HomeFréttirGlæsilegur sigur gegn Bretlandi tryggði Íslandi efsta sætið í F-riðli

Glæsilegur sigur gegn Bretlandi tryggði Íslandi efsta sætið í F-riðli

Íslenska U16 ára landslið stúlkna í körfuknattleik tryggði sér sæti í undanúrslitum í sínum hluta á Evrópumótinu í Ioannina í Grikklandi með öruggum 72-59 sigri gegn Bretlandi í dag.

Leikurinn var hnífjafn á upphafsmínútunum og stóðu leikar 22-22 að loknum fyrsta leikhluta. Íslensku stúlkurnar náðu hins vegar undirtökunum í öðrum leikhluta, unnu hann 19-14 og leiddu allt til leiksloka. Ísland stýrði ferðinni í tæpar 34 mínútur af leiknum og náði mest 12 stiga áhlaupi.

Lykillinn að sigrinum lá í öflugum varnarleik og mikilli atorku þar sem íslenska liðið stal boltanum 20 sinnum af breska liðinu og nýtti sér 40 tapaða bolta andstæðinganna til að skora 32 stig.

Stigahæst í íslenska liðinu var Berglind Katla Hlynsdóttir sem fór á kostum og skoraði 31 stig ásamt því að taka 6 fráköst, stela 4 boltum og verja 2 skot. Rún Sveinbjarnardóttir átti einnig frábæran leik, skoraði 15 stig, tók 10 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 7 boltum. Þá skoraði Eva Ingibjörg Óladóttir 4 stig en skilaði 10 fráköstum, 2 stoðsendingum og frábærum varnarleik.

Með þessum glæsilega sigri lýkur Ísland leik í efsta sæti F-riðils með tvo sigra úr tveimur leikjum. Næst á dagskránni eru undanúrslitin sem fara fram mánudaginn 10. ágúst, þar sem stúlkurnar mæta liði úr E-riðli í baráttunni um að komast í úrslitaleikinn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -