Kristný Halla Bragadóttir er gengin í raðir Þórs Akureyri og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Kristný Halla, sem er 172 cm bakvörður, kemur til Þórs frá Skallagrími þar sem hún hefur æft og keppt allt frá sex ára aldri. Þórsarar fagna komu hennar og lýsa henni sem varnarþenkjandi leikmanni og leiðtoga sem leggur mikla áherslu á liðsheildina.




