HomeBónus deildinBónus deild kvennaFranskur leikmaður í Ólafssal

Franskur leikmaður í Ólafssal

Haukar hafa samið við franska leikmanninn Eloise Pavrette fyrir komandi tímabil. Pavrette er 23ja ára gamall, 191 cm framherji/miðherji.

Hún lék síðast í frönsku 2. deildinni þar sem hún skilaði um 7 stigum og 5 fráköstum að meðaltali í leik, en hún hefur einnig leikið í Þýskalandi og Ítalíu. Viktor, þjálfari Hauka, fagnar komu hennar og segir hana koma með hæfileika sem liðið vantaði og muni reynast mikilvæg á næstu leiktíð.

Fréttir
- Auglýsing -