U18-landslið kvenna í körfuknattleik mætir Bretlandi í umspili um 5.–8. sæti B-deildar Evrópumótsins í Tulcea í Rúmeníu í dag, laugardaginn 8. ágúst. Flautað verður til leiks klukkan 10:30 að íslenskum tíma.
Íslensku stelpurnar máttu þola tap gegn Ísrael í átta liða úrslitum í gær og færðust því í umspilskeppnina. Þrátt fyrir það er mikið í húfi í leik dagsins en sigur tryggir liðinu þátttöku í leik um 5. sæti mótsins á morgun, sem væri frábær árangur.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá leik Íslands og Bretlands hér




