HomeFréttirU18 kvenna í stórleik dagsins: Mæta Ísrael í átta liða úrslitum á...

U18 kvenna í stórleik dagsins: Mæta Ísrael í átta liða úrslitum á EM

U18-landslið kvenna leikur í dag, föstudaginn 7. ágúst, sinn mikilvægasta leik í B-deild Evrópumótsins í Rúmeníu til þessa.

Íslensku stelpurnar mæta sterku liði Ísraels í átta liða úrslitum mótsins og flautað verður til leiks klukkan 10:30 að íslenskum tíma.

Íslenska liðið hefur gengið vel og er það á mikilli sigurbylgju undanfarna daga, en stelpurnar hafa aðeins tapað einum leik á mótinu til þessa. Allt er í húfi í dag því sigur í leiknum tryggir Íslandi sæti í undanúrslitum og baráttu um að komast upp í A-deild.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá úrslitalleiknum hér

Fréttir
- Auglýsing -