Hilmir Arnarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna og mun leika með liðinu í Bónusdeildinni í vetur.
Hilmir, sem er fæddur árið 2005, spilaði 22 leiki í deildinni á síðasta tímabili þar sem hann skilaði 6 stigum og tæpum 3 fráköstum að meðaltali í leik. Hann er uppalinn hjá Fjölni en lék síðast með Álftnesingum, en hann var valinn besti ungi leikmaðurinn í Bónusdeildinni tímabilið 2024-2025.




