HomeFréttirU16 kvenna hefur leik í dag: Ísland mætir Noregi í fyrsta leik...

U16 kvenna hefur leik í dag: Ísland mætir Noregi í fyrsta leik mótsins

Íslenska U16 ára landslið stúlkna í körfuknattleik hefur leik í B-deild Evrópumótsins í Ioannina í Grikklandi í dag, fimmtudaginn 6. ágúst.

Fyrsti leikur stúlknanna í F-riðli er gegn Grönnum okkar frá Noregi og hefst leikurinn klukkan 14:00 að íslenskum tíma.

Búist er við spennandi og mikilvægri viðureign þar sem góð byrjun í riðlinum getur skipt sköpum fyrir áframhaldandi þátttöku liðsins á mótinu.

Hægt er að fylgjast með öllum leiknum í beinni útsendingu í myndspilaranum hér fyrir neðan:

Fréttir
- Auglýsing -