Ármanns hefur náð samningum við pólsku körfuknattleikskonuna Edytu Falenczyk fyrir komandi tímabil í Bónusdeildinni.
Falenczyk er 182 sentímetra hár framherji sem býr yfir víðtækri reynslu úr evrópskum körfubolta.
Hún hefur leikið í efstu deildum Póllands, Litháens, Tékklands, Ítalíu og á Íslandi, þar sem hún hefur áður klæðst búningi Tindastóls og Grindavíkur. Hún er samkvæmt tilkynningu þekkt fyrir fjölhæfni, sterkan varnarleik og góða skotnýtingu, og er henni ætlað að styrkja ungt lið Ármanns með reynslu sinni og leiðtogahæfileikum á næstu leiktíð.




