Semur á Selfossi

Selfoss hefur samið við Kennedi Watkins um að spila með meistaraflokki kvenna á tímabilinu 2026-2027.

Watkins er samkvæmt tilkynningu öflugur og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hún er að hefja sitt annað ár sem atvinnumaður, en á síðustu leiktíð lék hún í Portúgal með góðum árangri og hjálpaði liði sínu að tryggja sér sæti í efri deild. Áður lék hún í bandaríska háskólaboltanum með Ohio University í MAC-deildinni þar sem hún skoraði tæp 15 stig að meðaltali í leik og var valin í 3. úrvalslið deildarinnar.

Fréttir
- Auglýsing -