Lars Erik Bragason hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild KR og mun spila í Vesturbænum næstu tvö tímabilin. Lars er tvítugur uppalinn KR-ingur sem hefur látið mikið að sér kveða í yngri landsliðum Íslands, en hann var síðast fyrirliði U20-landsliðsins sem tryggði sér sæti í A-deild EuroBasket.
Lars átti frábært tímabil í 1. deildinni á síðustu leiktíð með venslafélaginu KV og var valinn í úrvalslið deildarinnar. Hann var með 21,6 stig, 5,0 fráköst og 3,6 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, segist hafa mikla trú á Lars og sér hann fyrir sér í góðu hlutverki hjá KR á komandi vetri eftir miklar framfarir á síðasta tímabili. Sjálfur sagðist Lars vera virkilega ánægður og stoltur með nýja samninginn og hlakka mikið til vetrarins.



