HomeBónus deildinBónus deild karlaBaldur Þór mættur í hóp þeirra fremstu: Ræddi leikskipulag og taktík í...

Baldur Þór mættur í hóp þeirra fremstu: Ræddi leikskipulag og taktík í Slappin’ Glass

Baldur Þór Ragnarsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik og þjálfari Álftaness í Bónusdeild karla, var nýverið gestur í hlaðvarpsþættinum Slappin’ Glass Podcast. Það þykir mikill heiður að fá boð um að mæta í þáttinn en hann er á meðal virtustu hlaðvarpsþátta heims á sínu sviði og sérhæfir sig í taktískri umræðu og leikgreiningu á hæsta stigi.

Aðeins fremstu og færustu körfuknattleiksþjálfurum heims er boðið að koma fram í þættinum til að mennta aðra þjálfara, ræða tæknileg atriði, taktík og leikskipulag ásamt því að fara yfir hvernig undirbúningi og æfingum er háttað. Það að Baldur hafi verið boðið í þennan hóp undirstrikar því vel þekkingu hans og orðspor í þjálfaraheiminum.

Í þættinum fer Baldur yfir sína nálgun á leikgreiningu andstæðinga, greiningu á tölfræði og myndskeiðum, varnarskipulag og hvernig hann uppbyggir krefjandi æfingar. Þátturinn er veisla fyrir leikgreinendur og áhugafólk um körfuknattleik og er hann aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Hérna er hægt að hlusta á Slappin Glass

Fréttir
- Auglýsing -