HomeBónus deildinBónus deild karlaDominykas Milka: „Hélt að ég ætti eftir að ljúka ferlinum hjá Njarðvík“

Dominykas Milka: „Hélt að ég ætti eftir að ljúka ferlinum hjá Njarðvík“

Tilkynnt var í gær að litháíski miðherjinn Dominykas Milka verði ekki áfram í röðum Njarðvíkur á komandi tímabili. Milka hefur leikið með Njarðvíkingum síðustu þrjú tímabil en er nú á leið í nýtt verkefni. Karfan náði tali af honum þar sem hann fór yfir tímann í IceMar höllinni og næstu skref.

Brottförin kom mörgum á óvart og segir Milka að ákvörðunin hafi tekið á. Hann hafði áður rætt það við bæði þjálfara og stjórnarmenn félagsins að hann sæi fyrir sér að klára ferilinn í grænu treyjunni.

„En því miður virkar boltinn ekki alltaf þannig. Ég mun samt sem áður alltaf vera þakklátur fyrir tímann minn í Njarðvík,“ segir Milka og lýsir dvölinni hjá félaginu sem lærdómsríkri. „Tími minn hjá Njarðvík var jákvæður en líka krefjandi. Á þessum þremur árum upplifðum við ótrúlega sigra og erfiða ósigra“

Hann segist stoltur af því að hafa hjálpað félaginu á miklum breytingatímum, hvort sem það var við opnun á nýrri glæsilegri höll eða að styðja við bakið á Rúnari Inga Erlingssyni og Loga Gunnarssyni sem voru að stíga sín fyrstu skref í þjálfun í deildinni. Milka segir stuðningsmenn og samfélagið í Njarðvík hafa tekið sér opnum örmum frá fyrsta degi og að flóðbylgja af skilaboðum hafi borist frá þeim eftir að tilkynnt var um skilnaðinn.

Tilboð frá Asíu og Evrópu – Ísland er samt heima

Næsta skref er óráðið en Milka dregur ekkert úr því að hann sé í hörkuformi og tilbúinn í næstu áskorun. Eftir að hafa spilað á Íslandi í sjö tímabil segir hann landið vera orðið sitt annað heimili.

„Hvað tekur við? Satt best að segja, þá veit ég það ekki ennþá. Fyrst ætla ég að fagna afmælinu með kærustunni minni, Sigrúnu. Mér líður betur en nokkru sinni fyrr og ætla klárlega að halda áfram að spila.“

Hann viðurkennir að hafa þegar fengið fyrirspurnir og tilboð frá félögum á meginlandi Evrópu ásamt Asíu, en á sama tíma sé hann í viðræðum við nokkur íslensk lið.

„Lykilatriðið hjá mér er ekki endilega ákveðinn áfangastaður, heldur að finna rétta umhverfið þar sem mér líður vel og get verið hamingjusamur.“

Vill miðla reynslunni til næstu kynslóðar

Milka hefur nú leikið sem atvinnumaður í tólf tímabil en segist enn hafa sömu ástríðu og þegar hann mætti á sína fyrstu æfingu sem átta ára strákur. Hann vonast til að næsta félag nýti sér reynslu hans, bæði innan sem utan.

„Eftir sjö ár hér á landi hef ég safnað mikilli reynslu sem ég vil miðla til samherja, þjálfara og sérstaklega til næstu kynslóðar íslenskra körfuboltamanna. Ég er með hugmyndir, reynslu og orku sem ég tel að geti hjálpað félagi að vaxa.“

Að lokum segist hann ekki vera að kveðja Njarðvíkinga til fulls heldur frekar kasta á þá kveðjunni: „Sjáumst síðar.“

Fréttir
- Auglýsing -