Garðar Kjartan Arnarsson hefur framlengt samning sinn við Fjölni og mun leika með liðinu allt til ársins 2028.
Garðar, sem er betur þekktur sem Gassi, er uppalinn Fjölnismaður og öflugur leikstjórnandi sem hefur reynst liðinu gríðarlega mikilvægur. Hjá Grafarvogsfélaginu ríkir mikil ánægja með að tryggja þjónustu hans til næstu ára og að hann verði áfram í gulu og bláu treyjunni.



