HomeBónus deildinBónus deild karlaHvert fer Dominykas Milka?

Hvert fer Dominykas Milka?

Mikill sjónarsviptir verður af Dominykas Milka hjá Njarðvík en félagið hefur tilkynnt að þessi frábæri litháíski leikmaður verði ekki á þeirra snærum á komandi tímabili.

Milka, sem er einn allra besti og öflugasti miðherji deildarinnar, skilur eftir sig stórt skarð í Ljónagryfjunni og er óvíst hvaða lið nælir í þennan öfluga leikmann.

Á þremur árum sínum í Njarðvík, en hann mætti þangað sumarið 2023 eftir fjögurra ára dvöl hjá Keflavík, skilaði hann að meðaltali fimmtán stigum og tíu fráköstum í leik.

Fréttirnar af brottför hans eru mikið áfall fyrir Njarðvíkinga sem standa frammi fyrir miklum breytingum á sínum hópi, en fyrir skömmu yfirgaf Dwayne Lautier-Ogunleye félagið einnig og varð leikmaður Vals.

Fréttir
- Auglýsing -