Vestri hefur gengið frá samningi við spænska bakvörðinn Arnau Valderama. Valderama mun ekki aðeins leika með meistaraflokki félagsins heldur mun hann einnig koma að þjálfun í yngri flokkum Vestra.
Arnau er 26 ára gamall, 190 cm á hæð, og býr yfir mikill reynslu úr spænskum körfubolta þar sem hann hefur meðal annars leikið með CB Castelldefels, Basket Almeda, Ontinyent CB og síðast BC Tecla Sala.
Valderama er lýst sem hröðum og öflugum leikmanni sem er sterkur í vörninni og hættulegur fyrir utan þriggja stiga línuna. Hjá Vestra er einnig bundin mikil von við vinnusemi hans og fagmannleg viðhorf, en hann er þekktur fyrir mikinn vinnuanda bæði á æfingum og í leikjum.



