Semur á Skaganum

ÍA hefur samið við Tómas Inga Hannesson um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Þrátt fyrir ungan aldur lék Tómas 12 leiki með ÍA í Bónusdeildinni á síðustu leiktíð.

Tómas er samkvæmt tilkynningu félagsins þekktur fyrir að vera öflugur varnarmaður sem leggur mikið á sig til að ná enn lengra. Hjá félaginu ríkir mikil ánægja með að sjá hann halda áfram að þróast og spila í AvAir höllinni á Akranesi á komandi vetri.

Fréttir
- Auglýsing -