Þór Akureyri hafa gengið frá samningi við kanadíska leikstjórnandann Justin Andrew fyrir komandi tímabil.
Andrew er 183 cm bakvörður frá Hamilton í Kanada sem býr yfir víðtækri reynslu úr evrópskum körfubolta, en hann hefur áður leikið í Portúgal, Þýskalandi og Austurríki. Þar hefur hann vakið verðskuldaða athygli fyrir hraða, leikskilning og góða stjórnun á leik sinna liða.
Kanadamaðurinn skartar einnig ítölsku vegabréfi og kemur því til með að veita leikmannahópi Þórs mikilvægt jafnvægi. Á síðustu leiktíð sýndi hann öflugan sóknarleik, bæði sem atkvæðamikill stigaskorari og leikstjórnandi sem getur skapað tækifæri fyrir sjálfan sig og samherja sína. Hjá Þór ríkir mikil ánægja með að fá Andrew til liðs við félagið og er honum ætlað stórt hlutverk í rauðu og hvítu búningunum á Akureyri í vetur.



