Keflavík hefur gengið frá samningi við litháska framherjann Robertas Jonaitis fyrir komandi keppnistímabil.
Jonaitis er 196 cm leikmaður sem býr yfir reynslu úr bandaríska háskólaboltanum, en á síðasta tímabili lék hann með Kordall Steelers í Lúxemborg. Hjá Keflavík ríkir mikil ánægja með að fá hann í leikmannahópinn og er hann boðinn velkominn í Blue höllina fyrir átök vetrarins.



