Semur við Stjörnuna

Bára Björk Óladóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna og mun áfram leika með félaginu á komandi keppnistímabili.

Bára Björk hefur æft og spilað körfubolta frá unga aldri með Stjörnunni og heldur því áfram að vaxa í sínu uppeldisfélagi. Hjá Stjörnunni ríkir mikil ánægja með að halda henni í hópnum og verður gaman að fylgjast með leik hennar í ÞG Verk höllinni í Garðabæ í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -