ÍR hefur gengið frá samningi við bandaríska leikmanninn Janiya Foskey um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi keppnistímabili.
Foskey er fjölhæfur framherji sem kemur með stærð, kraft og orku inn í leikmannahópinn, auk þess að vera öflug skytta og sterk í frákastabaráttunni.
Á síðasta tímabili lék hún með Pyrintö í efstu deild Finnlands og skilaði þar 10,4 stigum og 8,0 fráköstum að meðaltali í leik. Áður en atvinnumannaferill hennar hófst í Evrópu lék hún með Catawba College í NCAA Division II, þar sem hún var í lykilhlutverki og skilaði 15 stigum og 7,6 fráköstum að meðaltali á sínu lokaári. Hjá ÍR ríkir mikil ánægja með að fá Foskey í Breiðholtið fyrir átök vetrarins.



