Keflavík hefur gengið frá samningi við Bandaríkjakonuna Hannah Little fyrir komandi tímabil. Little er 186 cm framherji sem kemur með mikla reynslu úr stórum deildum í Evrópu, en hún hefur síðustu ár spilað í efstu deildum í Finnlandi, Ungverjalandi og Svíþjóð.
Arnór þjálfari segist mjög spenntur að fá hana til liðsins og lýsir henni sem öflugum og hreyfanlegum framherja, frábærum sóknar- og varnarmanni ásamt því að vera flottur karakter sem mun passa vel hópinum í Blue höllinni í vetur.



