Þakka fyrir sig

Breiðabliks hefur sent frá sér þakkarkveðju til fjögurra leikmanna sinna sem eru á förum frá félaginu, þeirra Loga Guðmundssonar, Alexanders Jan Hrafnssonar, Marinós Pálmasonar og Sölva Ólasonar.

Leikmennirnir halda allir í nýjar áttir fyrir komandi tímabil. Logi Guðmundsson hefur hlotið skólastyrk og heldur til Hawaii þar sem hann mun leika í bandaríska háskólaboltanum. Alexander Jan Hrafnsson hefur samið við Sindra og mun leika með þeim í Bónusdeild karla. Marinó Pálmason snýr aftur í sítt uppeldisfélag, Skallagrím, eftir tveggja ára dvöl hjá Breiðablik. Þá hefur Sölvi Ólason gengið í raðir ÍA og mun leika með þeim í 1. deildinni.

Þrír af leikmönnunum fjórum eru uppaldir Blikar, en hjá félaginu ríkir mikið stokt yfir því öfluga uppeldisstarfi sem unnið er í Smáranum og að sjá unga leikmenn taka næstu skref á sínum ferli. Breiðablik þakkar þeim öllum kærlega fyrir þeirra framlag og óskar þeim velfarnaðar í næstu verkefnum.

Fréttir
- Auglýsing -