HomeNeðri deildir1. deild karlaGengur í þjálfarateymi Þórs

Gengur í þjálfarateymi Þórs

Þór Þorlákshöfn hefur ráðið Sævar Elí Kjartansson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi tímabil. Jafnframt mun hann taka við þjálfun 12. flokks kvenna hjá félaginu. Sævar hefur starfað sem aðstoðarþjálfari Hamars/Þórs undanfarin ár og kemur því með dýrmæta reynslu og góða þekkingu á deildinni inn í þjálfarateymið.

Davíð Arnar, þjálfari meistaraflokks kvenna, fagnar ráðningunni og bendir á að þeir Sævar deili sömu sýn á uppbyggingu sterks liðs og öflugs æfingaumhverfis. Hjá Þór er mikil ánægja með komu hans og hlakkað mikið til að sjá hann á hliðarlínunni í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -