Njarðvík hefur samið við Spencer Svejcar fyrir komandi átök í Bónus-deild karla. Svejcar er fæddur í Bandaríkjunum en er einnig með Tékknesk ríkisfang og á að baki landsleiki með A-landsliði Tékka.
Svejcar er 32 ára gamall bakvörður og lék síðast með FC Cartagena Basketball á Spáni.
Nánar er fjallað um málið á heimasíðu Njarðvíkinga



