HomeNeðri deildir1. deild karlaYfirgefur Smárann fyrir Bónus deildina

Yfirgefur Smárann fyrir Bónus deildina

Sindri hefur gengið frá samningi við Alexander Jan Hrafnsson um að leika með liðinu í Bónusdeildinni á næsta tímabili.

Alexander Jan kemur til Sindra frá Breiðabliki, þar sem hann hefur gegnt mikilvægu hlutverki á báðum endum vallarins undanfarin tvö tímabil.

Hann er hávaxinn skotbakvörður sem lék með U18 landsliði Íslands á Norðurlanda- og Evrópumótinu síðasta sumar í kjölfar góðrar frammistöðu með Blikum. Hjá Sindra er honum lýst sem metnaðarfullum leikmanni sem spilar af mikilli ákefð og orku, og ríkir mikil ánægja með að fá hann til að taka næstu skref á ferlinum í Sindratreyjunni.

Fréttir
- Auglýsing -