Körfuboltasérfræðingurinn Brian Windhorst fullyrti nýverið í hlaðvarpsþætti sínum að stjörnuleikmaðurinn LeBron James hreinlega hataði Boston og að liðið yrði í 30. og neðsta sæti á lista yfir þá staði sem hann myndi íhuga að spila fyrir.
Ummælin voru látin falla í tengslum við vangaveltur um framtíð James á frjálsum samningsmarkaði (e. free agency), en kappinn á sér langa og stranga sögu sem einn helsti andstæðingur Boston Celtics í NBA-deildinni.
LeBron hefur enn ekki látið í ljós hvert hann ætlar eftir að hafa lokið 7 árum með Los Angeles Lakers, en vænta má að fregnir af næsta liði hans sé að vænta þar sem nýtt tímabil fari bráðum af stað.



