Björn Skúli Birnisson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnunnar. Björn Skúli, sem er 19 ára gamall, er uppalinn Stjörnumaður í húð og hár en hann hefur æft og spilað körfubolta með félaginu allt frá fimm ára aldri.
Hjá Garðbæingum ríkir mikil ánægja með að halda þessum trygga og efnilega leikmanni innan sinna raða, og verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi vexti hans og framlagi í Ásgarði á komandi tímabili.



