HomeBónus deildinBónus deild karlaGengur í raðir Ármanns

Gengur í raðir Ármanns

Ármann hefur samið við sænska leikstjórnandann Adam Johansson um að leika með meistaraflokki karla á komandi leiktíð. Adam er 26 ára gamall og kemur frá Östersund í Svíþjóð. Hann hefur undanfarin ár leikið með uppeldisfélagi sínu, Jämtland Basket, í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hann gegndi stöðu fyrirliða og spilaði yfir 200 keppnisleiki.

Á síðustu leiktíð skilaði hann að meðaltali 8,3 stigum, 5,1 stoðsendingu og 2,4 fráköstum í leik. Honum er lýst sem leiðtoga með góða yfirsýn yfir völlinn sem skapar fyrir samherja sína. Hjá Ármanni ríkir mikil ánægja með komu Adams og bindur félagið miklar vonir við að hæfileikar hans og reynsla muni styrkja liðið í þeim verkefnum sem fram undan eru.

Fréttir
- Auglýsing -