Höttur hefur gengið frá samningi við Josh Martin fyrir komandi tímabil í Bónusdeildinni. Martin er 30 ára gamall Bandaríkjamaður með ítalskt vegabréf, 201 cm á hæð, og er honum lýst sem gríðarlega kraftmiklum framherja og frákastara.
Hann kemur til Hattar með góða reynslu en hann lék meðal annars í efstu deild í Svíþjóð með sterku liði Boras, þar sem hann skilaði 8 stigum og 8 fráköstum að meðaltali í leik. Síðast lék hann í næstefstu deild í Japan. Hjá Hetti ríkir mikil ánægja með að fá Martin til að þétta raðirnar fyrir átökin í vetur og er hann boðinn hjartanlega velkominn í Hattarfjölskylduna.



