Þór á Akureyri hefur gengið frá samningi við bandaríska framherjann Nile Miller fyrir komandi tímabil.
Miller kemur til félagsins frá Howard University, einu af sterkustu háskólaliðum MEAC-deildarinnar í Bandaríkjunum, þar sem hún gegndi lykilhlutverki og átti stóran þátt í að leiða liðið til bæði deildar- og meistaratitils á síðustu leiktíð.
Hún hefur byggt upp sterkt orðspor sem framúrskarandi varnarmaður, en hún var þrívegis valin í varnarlið MEAC-deildarinnar og hlaut jafnframt sæti í 2. liði All-MEAC á lokaári sínu í háskólaboltanum. Miller hefur verið einn af burðarásum Howard-liðsins undanfarin ár, enda þekkt fyrir mikla vinnusemi, kraft undir körfunni og óbilandi keppnisskap.
Hjá Þór ríkir mikil ánægja með komu Miller og er því treyst að hún muni styrkja liðið verulega á báðum endum vallarins. Forráðamenn félagsins benda á að baráttugleði hennar, leiðtogahæfileikar og metnaður falli fullkomlega að þeirri menningu sem stefnt er að því að byggja upp í Þorpinu.



