Áfram á Hlíðarenda

Þóranna Kika Hodge-Carr hefur framlengt samning sinn við Val og mun spila sitt annað tímabil með liðinu á komandi leiktíð.

Hjá Val ríkir mikil ánægja með að halda Þórönnu innan sinna raða, en hún er sögð færa liðinu gríðarlega mikið jafnt innan sem utan vallar. Sérstaklega er bent á að ákafur varnarleikur hennar og hraði í hraðaupphlaupum geri liðinu kleift að spila hraðan og skemmtilegan körfubolta.

Bæði Þóranna og Jamil þjálfari fagna áframhaldandi samstarfi. Jamil lýsir Þórönnu sem frábærum leikmanni til að þjálfa, en hún sé vinnusöm, tilbúin að takast á við nýjar áskoranir og búi yfir miklu keppnisskapi sem muni nýtast henni til að taka enn frekari framförum. Þóranna sjálf kveðst spennt að halda áfram á þessari braut með liðinu, byggja ofan á það sem þegar hefur verið gert og koma enn sterkari inn í komandi tímabil.

Fréttir
- Auglýsing -