Höttur hefur samið við Svein Búa Birgisson fyrir komandi tímabil.
Sveinn Búi snýr aftur á heimaslóðir eftir fjögurra ára dvöl í bandaríska háskólaboltanum þar sem hann lék fyrstu tvö árin með Siena og síðustu tvö með Lynn University. Á síðasta tímabili sínu úti skilaði hann 7,5 stigum, 3,6 fráköstum og 1,1 stoðsendingu að meðaltali í leik.
Hjá Hetti ríkir mikil ánægja með að fá Svein Búa í raðirnar, en hann á sterkar rætur að rekja á Austurland þar sem móðir hans er fædd og uppalin á Héraði.



