Íslenska undir 20 ára landslið karla leikur sinn þriðja leik í riðlakeppni B-deildar Eurobasket í Bratislava í kvöld. Andstæðingar kvöldsins eru strákarnir frá Kosovo og hefst leikurinn klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Íslenska liðið hefur farið frábærlega af stað á mótinu og unnið fyrstu tvo leiki sína í C-riðli gegn Armeníu og Kýpur. Strákarnir okkar ætla sér vafalaust að halda sigurgöngunni áfram í kvöld og styrkja stöðu sína enn frekar í baráttunni.
Hægt er að fylgjast með strákunum okkar og horfa á leikinn í beinni útsendingu hér fyrir neðan:



