HomeBónus deildinBónus deild karlaYfirgefur Val og semur í Mexíkó

Yfirgefur Val og semur í Mexíkó

Keyshawn Woods hefur yfirgefið raðir Vals og samið við mexíkóska úrvalsdeildarliðið Santos. Woods var í lykilhlutverki á Hlíðarenda á síðasta tímabili þar sem hann spilaði 23 leiki og reyndist einn allra besti leikmaður deildarinnar.

Hann skilaði frábæru framlagi, en hann skoraði að meðaltali 18 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á liðnu tímabili. Þetta eru líklega mikil vonbrigði fyrir Valsmenn sem sjá á eftir öflugum leikmanni fyrir átökin sem framundan eru.

Fréttir
- Auglýsing -